Great words won't cover ugly actions

Good frames won't save bad paintings

18.02.2007 20:59:41 / ólöf

söknuður

Einhverntíman er tími til að setjast niður og hugsa sín mál. Hverju muni maður sjá eftir eða breyta og hvað maður myndi tvímælalaust gera á sama hátt aftur og aftur og aftur. Hvort það sé því maður finnur breytingu innra með sjálfum sér eða í hópi vina. Hvort það sé skortur á lausum tíma eða of mikið af lausum tíma.
Krakkarnir sem ég er yfirleitt með í skólanum, krakkarnir af listnámsbraut að mörgu leiti, eru svo margir á leið út. Margir fara næsta haust, sumir hafa jafnvel sótt um. Þetta hræðir mig þó ég sé spennt fyrir þeirra hönd. Þau halda áfram, en ég er ekki búin. Þó mér finnist æðislegt að læra það sem ég er að læra, finnst mér svo hræðilegt að krakkana eigi suma eftir að vanta. Allir að halda áfram án manns, allir að fara út, prófa nýja spennandi hluti og ég mun sakna þeirra mikið.
Ég stend mig einnig af tímaleysi. Ég er í skóla fimm daga vikunnar frá átta til eftirmiðdegis. Ég er í tónlistarskóla tvisvar í viku og pilates þrisvar í viku. Ég hef skólaverkefni og heimalærdóm, ég hef æfingar og ég er svefnþurfi. Ég hef ekki hitt marga vini mína utan skóla í langan tíma, sem er ekki gott. Ég sakna stelpnanna, hef ekki séð þær í margar aldir, enda alltaf lausar á mismunandi tímum, kolómögulegt. Hitti samt Önnu í næstu viku, fimmtudags myndataka, og Hrefnu á sunnudag. Ansi magnað. Vantar tíma og er að reyna, en þegar ég er laus er það yfirleitt ekki hinir líka eða ég þarf að læra heima.
Allir eru að þroskast og verða fullorðnir, en mér finnst ég ekki tilbúin og það hræðir mig.

Kannski er ég bara eitthvað að rugla, en ég veit að ég mun sakna vina minna þó jafnframt sé ég glöð fyrir þeirra hönd að þau haldi á nýjar brautir. Við þurfum að leyfa okkur meiri tíma í að virkja vinatengsl, en það getur verið erfitt í kröfuhörðum heimi.


Lag Dagsins : Where Do You Go When The... - My Summer As a Salvation Soldier


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.01.2007 17:55:50 / ólöf

sumarið leið, bráðum kemur sólin á ný

Í sumar vann ég á leiksskólanum hér við hliðina.
Ég rekst gjarnan á krakkana af Gullborg þar sem þau eru víða nálægt, ég þekki þau, en þau þekkja mig ekki. Það er eitthvað svo gaman að sjá þau, en samt svo sorglegt að þau skuli ekki þekkja mann. Þau horfa kannski forvitnilega til manns, þau eru orðin þroskaðari, komin áfram í skóla jafnvel. Orðaforðinn hefur breikkað og aðeins teygst úr þeim sjálfum. Það sorglegasta við þetta ferli er að ég mun sennilega muna alltaf eftir þeim, en þau höfðu sennilega gleymt mér nokkrum mánuðum eftir að ég hætti að vinna þarna. Það gleður samt mitt litla hjarta að sjá hvað þeim vegnar vel og hvað þeim virðist líða vel.
Ég fór að hugsa út í þetta áðan, hef samt hugsað út í þetta áður. En þetta barst svona í hausinn því ég hitti strák sem var á deildinni hjá mér, sem heitir Símon. Hann brosti eins og maður brosir til ókunnuga og ég fann mig langaði að segja hæ, en ég gerði það ekki. Þá fór ég að hugsa til stelpnanna. Ég hef ekki hitt þær í svo langan tíma, og ég fór að hugsa; ef þær væru sirka 5 ára, væru þær sennilega búnar að gleyma manni. En þær vita af mér og ég veit af þeim, ég hitti Ragnheiði og Önnu annað kvöld og þær ásamt rest næstu helgi, eða það var planið. Ég hlakka til, ég sakna þeirra eins og ég sakna sumarsins. En samt hef ég tilhlökkun í mér til næsta dags, næstu viku, næsta mánaðar og já takk, næsta sumars. Þetta er allt eintómt ævintýri ef maður spáir í því.. en já..þetta var bara svona tjáning.

» 0 hafa sagt sína skoðun

07.01.2007 19:04:54 / ólöf

þrettán en sautján en sjö

Þrettándinn.
Ekki þrettándi janúar, heldur sá sjötti.
Jólin búin, jól á enda.
Það er eitthvað sem mér þykir alltaf svo tómlegt þegar jólin hverfa aftur á braut. Eitthvað sorglegt, leiðinlegt þegar jólasnjórinn liggur í loftinu og engin tilhlökkun á að vera til staðar.
Við sprengdum burt jólin með látum, fjólublár, grænn, bleikur, rauður, hvítur, gulur..bamm bamm bamm, hvellir og skellir, brennur og brunalykt. Djamm eða ekki djamm, hver hefur sinn hátt á þessu.
Ég var í sveitinni frá fimmtudegi og kom heim í dag, ágætis sveitavera, byggðist að mestu leyti á áti, leti, svefni og bíómyndum..en ég fór líka út að sprengja og í einn miðlungs langan labbitúr með Arnóri. Fín helgi..
Skólinn byrjar á morgunn, ég byrja klukkan átta upp á hvern einasta dag, sem þýðir að flesta daga verður vaknað um sex..foj

En ég hef þetta ekki lengra í bili..
þakka bara fyrir góða jólatíð og óska ykkar góðrar skólatíðar, bless í bili.

Lag Dagsins : Sugar Kane - Sonic Youth

» 1 hafa sagt sína skoðun

27.12.2006 00:50:57 / ólöf

Langaði bara að nýta tækifærið...

...til að óska öllum góðrar hátíðardaga
...til að þakka fyrir mig
...til að þakka fyrir allt gamalt og gott
...til að óska eftir góðri framtíð
...til að þakka fyrir vináttubönd í gegnum árin eða árið

Lag Dagsins : Can't Take My Eyes Off You - Lauryn Hill

Gleðileg Jól Og Farsælt Komandi Ár

Gleðilega hátíð, hafið hana sem besta með ykkar nánustu vinum og ættingjum.


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.12.2006 13:31:14 / ólöf

mörg blogg í röð, hví?

Nú er þetta orðið frekar einkennilegt,
það er minna en vika í jólin en ólöf er ekki ennþá að átta sig á því.
Ég er í litlu sem engu jólaskapi, en samt hlakka ég til. Undarlegt.
Ég er enn með gömlu góðu stress tilfinninguna að innan sem fylgdi mér í gegnum alla haustönn skólans þetta árið, hef daginn á morgunn og aðfangadagsmorgunn kannski til að klára að versla og gera allt sem á að gera.
Því það eru einu frídagarnir fram að jólum, en engu að síður þarf ég að lesa fyrir bílprófið, svara æfingaverkefnum fyrir ökukennarann og æfa bæði fyrir tónleika og spila á tónleikum. Og vegna tónleikanna varð ég að biðja um að mæta seinna í vinnuna. Óboj.
Þó ég sé í litlu jólaskapi hef ég gert marga jólalega hluti sem hefðu átt að koma mér í rétta skapið.. versla jólagjafir, pakka inn, föndra, skrifa jólakort, teikna jólakort, baka og hlusta á jólalög daginn út og daginn inn í vinnunni.
Þetta er frekar skrýtið, því almennt er ég jólabarn mikið.. en jæja, jólaskapið kemur og stressið fer, vonandi.
En jæja, þetta er drepleiðinleg saga hér, ég ætla að fara að æfa mig í ökunámi og nótnalestri, fjör. Það eru komnar "nýjar" myndir, svona blandaðar bara..neðsti linkurinn vinstra megin.

Lag Dagsins : Out Of This World - The Cure

» 1 hafa sagt sína skoðun

15.12.2006 00:16:59 / ólöf

Jólin nálgast

Sælt veri fólkið. Nú var ég að ljúka vinnudegi númer 2 sem þjónn á Indian Mango. Það er ágætis staður, frááábær matur og fínasta fólk þarna að vinna með mér, ég er alveg að meta þetta so far. Annars kláraði ég seinasta prófið mitt í gær, fór svo að vinna klukkan hálf 6. Í dag vaknaði ég síðan snemma og gerði eitthvað, fór svo í klippingu klukkan 2 (mjög sátt bara, fór á Gel og Jón Atli klippti mig)..ooog vinna aftur klukkan hálf sex. vííí. Þar hafiði það.

svo er gaman að segja frá því að á morgunn er ég að fara að hitta stelpurnar. Við verðum eitthvað í kringum 12 saman, almennilegur "hittingur" fyrir jólin=) föndra, skrifa jólakort, pakka inn jólapökkum...eitthvað þannig..hlakka til að sjá þær. Svo fer ég að passa með Arnóri um kvöldið..og eitthvað

Já var nú ekki gaman að lesa þetta einhverfa blogg?
ég ætla að fara að leggjast upp í sófa og horfa á friends..er uppgefin

Lag Dagsins : Younger Longer - Hafdís Huld

» 1 hafa sagt sína skoðun

24.11.2006 17:15:22 / ólöf

Nóvember gegn nauðgunum. Langt blogg um alvarleg og mikilvæg málefni

Góðan daginn. Ég tók mér hvíld frá þrifum og lærdómi og ákvað að tjá mig hér. Það er mikið um pælingar í kollinum á mér þessa stundina og búið að vera í dag. Í dag var frí í listasögu (eyða frá 9:30-11:20) og þá var lífsleiknitími sameiginlegur í matsalnum hjá busalýð skólans. Ég sat út í horni að spjalla við Axel þegar fyrsta árs nemar streyma inn í salinn og á sviðið stíga tveir krakkar á aldrinum 20-30, strákur og stelpa. Þau komu frá jafnaðarfræðslu Hins Hússins (snýst semsagt um það að fólk sem er ekki mikið eldra en við sjálf í skólanum eru þarna að fræða þau um mikilvæg málefni og auðveldara er að ná til krakkanna því þetta eru í raun krakkar sjálfir, eins og segir sig í raun sjálft í nafninu) og komu að fjalla um nauðgunarmál og misnotkanir, algengan misskilning um fólk sem heldur að stelpan/strákurinn sem verður nauðgað hafi á einhvern hátt kallað það yfir sig og að algengustu viðbrögð viðkomandi eftir á séu sekt frekar en reiði. 98 prósent nauðgana eru framdar á konum, en það þýðir ekki að þetta komi aldrei fyrir karlmenn, eða að konur nauðgi aldrei. Hinsvegar eru hlutföllin öðruvísi í barnamisnotkun, strákar eru tæplega helmingur þolenda þar. Set hér brot úr grein af femin.is:

"Nauðgun er gróf kynferðisleg árás og yfirleitt eru það konur eða börn, sem verða fyrir nauðgun, þó vissulega séu dæmi þess, að karlmönnum sé líka nauðgað og eru þær nauðganir í fæstum tilfellum kærðar. Hugsanlega liggja fordómar að baki því, að karlmenn kæri síður nauðgun en konur, þar sem almenningsálitið dæmir karla öðruvísi og karlar telja oft, að þeir hefðu getað varið sig betur sjálfir og sitja því oft uppi með ómeðhöndlaða skömm og vanlíðan eftir slíkt ofbeldi, sérstaklega ef um er að ræða nauðgun af hálfu annars karlmanns."

"Sú goðsögn, að kynhegðun karla og kvenna sé mismunandi, er röng. Kynhegðun karla og kvenna stafar ekki af líffræðilegum mismun kynjanna, heldur af því að stelpur og strákar hafa mismunandi uppeldi. Oft á tíðum túlka strákar/karlar skilaboð samfélagsins á þann veg, að þeir séu einhvers konar rándýr og konan bráð og að konur langi í raun og veru til að hafa við þá samfarir, en séu bara of feimnar til að segja það og karlmenn eigi því að yfirbuga þær. Flestir nauðgarar eru óöruggir með sig í samskiptum sínum við fólk og eru því oft að sanna karlmennsku/karlrembu sína með þessum glæp. Þeim finnst jafnvel spennandi að hræða og kvelja. Þeim finnst jafnvel æsandi að finna til valds síns, yfirbuga og niðurlægja konuna og sá ég einu sinni tilvitnun í bók, þar sem haft var eftir nauðgara: "Ég fyrirlít konur, sem láta undan mér og ég hata þær, sem gera það ekki". Segir þetta ýmislegt um það, sem er að gerast í sál viðkomandi einstaklings." Ég sjálf hef heyrt mjög marga tala um varnir gegn því að vera nauðgað (einhvers konar "hvernig geturu forðast nauðgun"-hugsun). Og þá eru oft nefnd dæmi (er ekki að tala um professional fólk sem veit mikið um málið) eins og að ganga ekki í flegnum bolum né stuttum pilsum, nálgast ekki um of "perralegaútlítandi" fólk og fleira í þessum dúr. Það er hinsvegar meirihluti nauðgana sem fer fram í heimahúsi og oft þekkir þolandinn gerandann og mjög oft er það viðkomandi sem þolandinn treystir og hleypir þess vegna nærri sér. Sérstaklega er það með barnamisnotkun, að ég veit um dæmi þar sem gerandinn er; faðir, móðir, frænka, frændi, bróðir, hálfbróðir, fósturbróðir....oooog svo framvegis...þolandans.. Það er að segja fólk sem er í nánu trausti barnsins og barnið trúir því sem það er sagt og heldur oft að þetta sé virkilega leið til að sýna ást sýna. Hér eru fleiri brot af femin:

"Nauðgun felst ekki endilega í því, að ókunnugur maður ráðist á konu og dragi hana inn í húsasund, runna, eða bíl. Næstum helmingur allra nauðgana er framinn af manni, sem þekkir konuna og nauðgar henni á eigin heimili. Í mörgum tilfellum hleypir konan manninum inn, vegna þess að hún þekkir hann, en stundum brýst hann inn. Flestar nauðganir og næstum allar hópnauðganir eru skipulagðar fyrirfram. Karlmaður, eða hópur karlmanna ákveður að hafa samfarir við ákveðna konu, hvort sem hún vill það eða ekki. Flestar konur, sem verða fyrir nauðgun eru á aldrinum 12 til 45 ára og flestir nauðgarar eru 16 til 35 ára."

"Kona, sem verður fyrir nauðgun, er niðurbrotin, hrædd og einmana og getur nauðgunin skaðað kynlíf hennar í mörg ár á eftir. Þó líkamlegu eftirköstin séu oft kvalafull, eru þau andlegu miklu verri. Líkamlegu áverkarnir geta verið marblettir, eða það rifni út úr leggöngunum og/eða endaþarminum. Einnig getur konan smitast af kynsjúkdómum og orðið ófrísk."

hér getiði svo séð restina af greininni ef þið hafið áhuga: Femin.is grein 


Það hvernig peningar eru tekin fram yfir framtíð landsins, börnin, í hverju málinu á fætur öðrum og það hvernig mörg nauðgunarmál firnast og verða að engu, það er sorglegt og asnalegt. Ég veit um dæmi til þess að 3000 kr stolnum úr Blómabúð var dæmt harðar heldur en misnotkun á ungu barni. Einnig ætla ég að nefna dæmi sem þið þekkið sennilega mörg, þar sem strákur fór með fyrrverandi kærustu sína upp í bústað yfir heila helgi þar sem hann pyntaði hana og misnotaði á verulega ofbeldisfullan hátt. Hér eru nokkur brot úr greininni, og þegar þið ljúkið að lesa hana, veltið þá fyrir ykkur að maðurinn fékk einungis 3 ára dóm fyrir þetta ógeðslega athæfi sitt:

"Maðurinn réðist að stúlkunni þegar maður sem hafði verið með þeim í sumarbústaðnum hélt á brott.Maðurinn barði stúlkuna með hnefum og skóm auk þess sem hann sparkaði ítrekað í hana. Þá klæddi hann hana úr fötunum og hótaði henni því að hann myndi mölbrjóta á henni báða fæturna ef hún reyndi að flýja. Þá nauðgaði hann stúlkunni ítrekað,hvoru tveggja í leggöng og endaþarm. Meðan á nauguninni stóð tróð hann glasahaldara úr tré upp í leggöng stúlkunnar. Að auki lét hann stúlkuna sleikja lim sinn og borða eigin saur. í hvert skipti sem stúlkan reyndi að mótmæla nauðgunum mannsins barði hann hana og hélt henni fastri. Þá hótaði hann stúlkunni að hann myndi fletta af henni húðinni með ostaskera og á henni voru för sem gáfu til kynna að hann hefði reynt slíkt. Þegar stúlkan sagðist þurfa að fara í sturtu þar sem hún væri öll skítug með saur í andæitinu henti maðurinn henni inn í brennandi heita sturtun og barði hana á meðan."

"Hjúkrunarfræðingur sem tók á móti fórnarlambinu á neyðarmóttöku greindi frá því fyrir rétti að áverkar á stúlkunni hafi verið það miklir að þetta hafi verið eitt það hrikalegasta tilvik sem hún hafði séð á neyðarmóttöku."

"Ekki hafi verið unnt að taka utan um hana þar sem hún hafi allstaðar fundið til, andlitið verið bólgið og augun sokkin. Þá getur hún þess að ástæða hafi verið talin til að hafa vörð yfir stúlkunni vegna hættu sem kynni að stafa af árásarmanninum"

"Maðurinn á langan afbrotaferil að baki og hefur hlotið 20 refsidóma á síðustu níu árum fyrir margvísleg afbrot svo sem umferðalagabrot,nytjastuld og dóma fyrir líkamsárás og þjófnað"

"Hann hélt af landi brott áður en málið var tekið fyrir og fór huldu höfði erlendis í rúmt ár.Eftir ítrekaðar tilraunir tókst að hafa uppá honum í Sviþjóð"

Já þetta er með því ógeðslegra sem ég veit um. Þetta er hneykslanlegt að hann fái einungis þrjú ár fyrir þetta hrottaverk, gengur nærri henni dauðri og pyntar hans og misnotar, sautján ára gamla stúlkuna. Og eins og þetta sé ekki nóg þá má ekki gleyma því að þetta hefur sett ör á sál stelpunnar að eilífu, þetta er ekki hlutur sem þú vaknar upp einn daginn og ert búinn að steingleyma. Þetta hefur áhrif á allt líf hennar í framtíðinni, allar ákvarðanir og öll viðbrögð. Svona hlutir setja manneskju í þau spor að finnast þau vera ein og yfirgefin, skítug og viðbjóðsleg, vinalaus, finnast enginn elska sig og skynja litla væntumþykkju. Viðbrögð eru auðvitað missterk, og sumir læra að lifa með hræðslunni, en aðrir ráða ekki við þetta, og það er mjög skiljanlegt.

Laugardaginn 25. nóvember næstkomandi, verður þögul hópstaða kl. 16.00 fyrir framan Héraðsdóm Reykjavíkur á Lækjartorgi, sem og héraðsdómstólana á Akureyri, Ísafirði, Selfossi og Egilsstöðum. Tilgangur kröfufundarins er að lýsa yfir áhyggjum yfir dómum, sem fallið hafa í nauðgunarmálum á undanförnum árum, en margir telja þá vera langt innan leyfilegs refsiramma fyrir slíka skelfilega glæpi.

Kannski skiljið þið ekki hvað ég meina, kannski skiljið þið það. Ég gæti sagt svo miklu miklu meira, en ég ætla að láta þetta duga í bili. Sýnum samstöðu og mótmælum fáránlega léttvægilegum dómum í þessu landi í svona hræðilegum málefnum. Þekkir þú fólk sem þarfnast hjálpar, eða þarfnist þú hjálpar sjálfur/sjálf, er mælt með að leita til Stigamóta. Einnig bendi ég á að frítt er að hringja í hjálparsímann 1717 og á hvorugum staðnum þar að geta til nafns. Fólk sem hefur ekki lent í atburðum sem þessum getur aldrei vitað hvernig þolendanum líður á meðan né eftir á, getur ímyndað sér en aldrei fundið. Mér finnst löngu tímabært að mótmælt sé léttvægilegum dómum, ef dóma má kalla, í nauðgunar og misnotkunarmálum.

Nei þýðir nei, nauðgun er alvarlegur glæpur.
Sama hvað gerendanum finnst hann túlka úr hegðun þolandans þá er þetta aldrei nokkurn tíman réttlætanlegt og segi þolandinn nei þá þýðir það nei.
Þetta er alvarlegt persónulegt brot og sálarmorð, hluti sem þessa er aldrei hægt að gleyma og gerendurnir í nánast hverju einasta tilfelli fremja svipaðan glæp aftur.

Lag Dagsins : Vökurró - Björk Guðmundsdóttir



-> Nóvember Gegn Nauðgunum <-

Kæri viðtakandi,
Vinsamlega áframsendu þessa beiðni til vina þinna, félaga og ættingja um að fjölmenna á kröfufund fyrir framan héraðsdómsstólana á Akureyri, Egilsstöðum, Ísafirði, Reykjavík og Selfossi laugardaginn 25.nóvember n.k. kl. 16.00.

Krafan er:
Þyngri dóma fyrir nauðganir. - Nýtið refsirammann!

Refsirammi laganna kveður á um að dómar fyrir nauðgun séu frá einu ári upp í 16 ára fangelsi. Flestir sakfellingardómar fyrir nauðgun eru við lægri mörk refsirammans. Við viljum sjá réttlátari og sanngjarnari dóma.

Áskorun um slíkt verður afhent allsherjarnefnd Alþingis á þriðjudag.

með kærri kveðju,
Kristín Ingvadóttir
Anna Kristine Magnúsdóttir


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.11.2006 20:42:09 / ólöf

Ekki á morgunn..heldur HINN!

Já, hér er ég búin að lofa Diljá minni að blogga..maður verður að standa sig.
Ég veit ekki alveg hvað ég ætti að tala um. Kannski gæti ég talað um veikindin, en það væri frekar niðurdrepandi. Ég gæti talað um lærdóm en það væri niðurdrepandi. Ég gæti talað um tilhlökkun, og á eflaust eftir að skjóta því inn, en það gæti valdið öfund. Ég er jú að fara á Sykurmolana á föstudaginn, læt ekki læknirinn banna mér það takk fyrir. Dagurinn er ekki enn liðinn og ég er strax komin með nóg af inniveru og veikindum, horfði á asnalega klisjukennda mynd áðan, og lagðist meira að segja svo látt að horfa á 6 til 7 áðan. Ég er búin að kommenta fullt á borgari.is svo síðan verði jú virk og maggi verði ánægður. Ég er að fara á sykurmolana á föstudaginn!! aaaaaaa...hlakka tiiiiiil! með Siggu, Arnóri, Magga, Axel, Jónu, Eyrúnu og kannski fleiröm? víííjj. Svo er ég reyndar sjálf að fara að spila á tónleikum bráðum..obbbbobobb..hmm. Jæja..hef ekki mikið meira en þetta. Hafið það gott úti í kuldanum eða inni, undir sæng með te í bolla fyrir þá sem ættu að láta sér batna. Góða nótt

Lag Dagsins : Mad World - Gary Jules

» 2 hafa sagt sína skoðun

13.10.2006 17:55:49 / ólöf

Where is your love? Don't you give me your love..don't you give me your sh'mon..sh'mon

Mér þykir himininn ekki alltaf fallegur, en hann er alltaf áhugaverður..spennandi.
Það er eitthvað við þetta sem hann er aldrei eins og skýin skapa á hann óreiðulegt en þó skipulagt munstur. Eins og núna er hann frekar grár, samt smá blámi í honum og skýin vega þungt yfir.. Þetta er ekkert sérlega fallegt, en samt er himininn eitthvað svo yfirgnæfandi og alls ráðandi þessa stundina og mér líður nánast eins og pöddu í gulum bíl..þ.e.a.s..strætó. Strætóbílstjórinn hefur ákveðið að grilla sér pöddur þó padda sé hann sjálfur og hefur því hitastigið yfir 40gráður, já það er alltaf partý í strætó. Sólin er að koma fram undan skýjaþunganum og það er svona ágætisveður sem auðvitað manni sem Íslendingi, verður ekki af að minnast á.
Aaaaanyhow, þetta var frekar einhverf pæling, en engu að síður blogg.. Myndin sem ég setti hér í bakgrunn flaug sinn veg og það er ágætt.. Ég er tóm núna og ætla að segja bless.

Lag Dagsins : Octavia's Love Song - Femme Fetale

» 6 hafa sagt sína skoðun

04.10.2006 21:40:28 / ólöf

..

HaaaLó, annað blogg strax bara, já svona er þetta
..það er aðeins öðruvísi útlit á síðunni hérna núna, var bara að prófa.
Var í skólanum í dag til klukkan 7, fatahönnun you see..það var ágætt, er bara full lengi að koma mér af stað.. Þarf líka að fara að koma mér almennilega af stað við heimasíðu gerðina í mhl þó ég sé búin að setja upp upphafssíðu og hanna útlitið lauslega, setja inn 5 myndir líka....já ekki meira en það..
Jæjaaa..hef ekkert skemmtilegt að segja frá held ég.. Bara lífið, það er kósý


L
ag Dagsins : Ekki Snerta Mig - Æla

» 3 hafa sagt sína skoðun

24.09.2006 18:28:29 / ólöf

blaðurskjóða

Haaaló....
Það er sunnudagur, ef þið vissuð það ekki..
Vaknaði ekki seint og ekki snemma, en var öflug og rölti út í smá labbitúr (í næsta bakarí, dugleg). Þessi helgi er búin að vera rosalega hugguleg, bara leti út í gegn..namm. Annars var mér boðið í mat í gær, mjög kósý og að honum loknum (matnum) fór ég að passa Melkorku og Kilijan (kannekkiaðskrifanafniðhansþvimiður), úti á Nesi. Var orðin afskaplega þreytt og var "hálf"sofandi þegar Kristín (mamman) kom til baka úr veislunni sem hún var í, fór þá bara heim að sofa. Já eins og ég segi, hugguleg helgi.. Annars er þetta frekar dautt hérna, hef ekki mikið að segja svosem..Fór reyndar líka á tónleika á fimmtudaginn, frá 6 til 10-11..hehe..þeir voru geggjaðir=) Shai Hulud, I adapt, Celestine og Severed Crotch auk tveggja annarra...það eru samt komnar nokkrar nýjar myndir. Vei..bless;)

Lag Dagsins : Jóga - Ben Gibbard
(lag eftir Björk)


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.08.2006 23:08:26 / ólöf

..

Mjaðmir ljúga ekki, þær sjá bara gult sítrónutré, ekki bláan himin, bara annað sítrónutré..kannski er ég klikkuð, kannski ert þú klikkuð, eins og kynlíf á ströndinni, já ég föndra, ég föndra, sveitastelpa, leiddu mig.

Lag Dagsins : Stagedives and Highfives - My Summer As a Salvation Soldier Afmælisbarn Dagsins : Móðir mín Kæra, 52 í dag

» 5 hafa sagt sína skoðun

03.08.2006 13:15:36 / ólöf

JebJeb

já það er nú blessuð blíðan í reykjavík,
eða bara ekki..
kom um 4 í gær heim úr 5 daga dvöl í sveitasælu 20+ stig eitthvað rúmlega, man ekki... ágætisveður það getur allavega átt það, hinsvegar aðeins of mikið af geitungum fyrir minn smekk. Svo fer ég reyndar aftur uppeftir í kvöld, kem aftur eftir verslunnarmannahelgina bara..
Já alltaf gaman að ferðasögum, sérstaklega frá fólki sem er not so much as a storyteller..en jæjaaa... Ef ekki væri nú fyrir Hrefnu blessunina held ég að bloggum myndi talsvert minnka..hmm Hitti hana einmitt í gær mjög fínt, plönin voru ófá og frekar ruglingsleg en það endaði í Babalú ásamt Axeli...huggulegt.

Jæja mikið meira hef ég ekki að segja í augnablikinu, eigiði góða verslunarmannahelgi og allt það...blúbbb

Lag Dagsins : Beautiful Boyz - CocoRosie
Texti Dagsins : Hand On Your Heart - Josè Conzález

AfLisBaRn Dagsins : Reeeeeeegní! Til hamingju stelpa;*


» 3 hafa sagt sína skoðun

29.07.2006 09:23:23 / ólöf

Sigur Rósar ferð til Öxnadals

Var að koma innúr húsi,
fór að lokinni vinnu í eldsnögga sturtu og rauk svo út og upp í Kringlu,
þar hitti ég Magga og Stebba og við lögðum af stað norður,
leið okkar lá í Öxnadalinn á Sigur Rós, vorum að keyra til hálf 11 aðeins sein á tónleikana, en vá..stemmingin, liggjandi í grasinu beint fyrir framan sviðið fremst, hlusta á þessa æðislegu tónlist og sjá þetta...bara..æðislegt.
Eftir það fórum við að stoppa á akureyri fyrir bensín og ég hringdi að sjálfssögðu í Atla og hitti hann örstutt bara rétt til að borða með okkur, alltaf æði að hitta hann.
Svo var bara keyrt heim og ég svaf á öxlinni á Magga svona alla leiðina, heh..party.
Var að koma, við lögðum af stað frá akureyri svona 2 í nótt, en við stoppuðum líka til að sofa á leiðinni.
hmm..niðurdrepandi blogg..en mér er sama..þessi ferð var tvímælalaust þess virði og mér fannst þetta geeeeeeeðveikir tónleikar, á varla orð yfir þessari hljómsveit, frábær!

Svo að þið sem vitið það ekki og viljið vita það viti það (hah..vó)..þá er ég að fara vestur í Dali og verð þar næstu vikuna, kem líklegast ekki aftur heim fyrir Verslunarmannahelgina, en verð með símann ef ykkur langar í heimsókn, bless..

Lag Dagsins : Sigur Rós tónleikarnir í heild
(of erfitt að gera upp á milli laganna í gær..)


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.07.2006 15:03:55 / ólöf

bojng

Jám, háwló.
Síðustu vinnuviku minni sem fóstra er nú lokið.
Þessi síðasta vika er búin að líða nokkurnveginn á rólegu nótunum,
vinna á daginn, kaffihús á kvöldin, svefn á nóttunni.
Búin að hitta einhverja af þessu líka ágætisfólki sem var á Hróarskeldu,
flestir talsvert brúnni en seinast þegar ég sá þau..
Veðrið á Íslandi er allt að koma til, sólin farin að láta sjá sig af og til.
En ég efast stórlega um að maður bæti miklum lit á sig þetta árið..
Annars ætla ég að fara að skutla mér í föt áður en Þorgils kemur að ná í mig..
Bojj

Lag Dagsins : Armageddon - Cocorosie


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Dagsetning
10. febrúar 2012
Nemendasíður